Það var húsfyllir á Vigdísarvöku sem Oddafélagið stóð fyrir í Norræna húsinu föstudaginn 2. desember s.l. Tilefnið var að heiðra Frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta en Oddafélagið hefur notið ómetanlegrar velvildar og hvatningar hennar frá fyrstu tíð. Vigdís var útnefnd heiðursfélagi við þetta tilefni.

Stoltir Oddafélagar með heiðursfélaga sinn Frú Vigdísi Finnbogadóttur
Dagskrá Vigdísarvöku heppnaðist afar vel en dagskráin hófst með glæsilegum tónlistarflutningi frá Tónlistarskóla Rangæinga sem einmitt á 60 ára starfsafmæli um þessar mundir. Hákon Kári Einarsson lék á píanó Moonlight eftir William Gillocken og Árný Gestsdóttir söng við undirleik Guðjóns Halldórs Óskarssonar Á jólanótt eftir Jón Ásgeirsson við texta Gunnars Dal. Þá steig leikkonan Guðrún S. Gísladóttir á stokk og flutti stórskemmtilegan texta frá eigin brjósti með tilvísunum í Rangæska tilveru fyrr á tíð og barnakór frá Mánagarði heiðraði samkomuna með kraftmiklum söng.

Frú Vigdís Finnbogadóttir flutti ávarp

Hákon Einarsson píanónemi við Tónlistarskóla Rangæinga

Guðjón Halldór Óskarsson píanókennari og Árný Gestsdóttir söngnemi frá Tónlistarskóla Rangæinga

Ólafur Egilsson fyrrv. sendiherra sagði sögu listaverks Ásgríms myndhöggvara – Sæmundar á Selnum

Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur fór yfir sögu Odda

Vala Gunnarsdóttir fornleifafræðingur sagði frá Oddarannsókn

Guðrún S. Gísladóttir steig á stokk

Krakkarnir frá leikskólanum Mánagarði sungu nokkur lög